jæja það
er víst komin tími til að blogga eitthvað.. þótt ég hafi ekki
frá miklu að segja.... nema það að tíminn flýgur áfram og mér
finnst ég bara vera að missa af sumrinu þótt að það sem varla
komið....
En allavega þá keyrðum við frænkur
suður í laugardaginn,,, ég og Hafdís
í ömurlegu veðri alla
leiðina þvílík rigning..... síðan í gær fór ég að fljúga
fékk
meira segja að fljúga sjálf mestan tíman
þetta var svona
kynnisflug til að sjá hvernig manni líst á þetta... en ég var nú
spennt fyrir þessu áður en varð bara enn hrifnari eftir þetta...
alveg ótrúleg tilfinning að geta verið svona í loftinu,,, varð
mikið hugsað til Diddu frænku þegar kennarinn tók aflið af vélinni
og lét hana fara á nefinu niður og maður sér bara jörðina nálgast
hratt... alveg geðveikt 


En nú er bara að að bíða eftir hvað
augnlækninn segir hvort ég megi fljúga eða ekki... vá hvað ég vona
að allt gangi upp, verð allavega mjög svekkt ef sjónin sé of
slæm.... en ef ekki þá byrjar skólinn bara 4 sept 
en nóg um það, fór síðan í klippingu
og í dag ætlaði ég að reyna að hitta hana Þrúðu en hún svarar
ekki... Hvar ertu???? en vonandi getum við þá hist á morgun
ef hún sé ekki fyrir norðan, hlakkar svo til að sjá hana Emilíu

en núna ætla ég að reyna fara gera
eitthvað.... helst í ræktina og vakna aðeins til lífsins

Bless á meðan
Steinunn