Skvísu svæði

Fátt smátt gerir lítið eitt eða ekki neitt.

30.03.2007 19:56:59 / steindis

enn og aftur helgi...

 

jæja þá er þessi vika senn á enda og styttist óðum í páskana... þessi vika var ekki lengi að líða.. nýja vinnan hefur bara gengið vel.. ég er búin að selja nokkra bíla og svona.. og afhenti þann fyrsta í dag, það var alveg ótrúlega gaman :) þetta er allt svo spennandi fyrir kúnnann að fá nýjan bíl og svona :)

Svo hefur bara verið nóg að gera alla þessa vikuna, ég hef nú reyndar aldrei verið búin á slaginu sex soldið mikið öðruvísi en áður..  hef reyndar verið alveg mega þreytt og lítið sinnt ræktinni undanfarið... en ég fer á morgun bara skal...

ég er reyndar að vinna á morgun líka.. er búin að vinna í rúmar 2 vikur samfleytt...en það er alveg að koma páskafrí :)

en já þetta er víst orðið alveg nóg um vinnunna í bili.. greinilegt að ég á mér ekkert líf þessa dagana ;) en ég er svo að fara í afmæli til Emilíu á morgun svo er ferming á sunnudaginn hjá Söru hennar Petu konráðs ( svona fyrir gamla liðið sem er að lesa... hehe Guðjón og svona ;)...)

eigið góða helgi

Steinunn

 

en allavega eigið góða helgi


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.03.2007 20:43:18 / steindis

....

skelfilegt að þurfa að fara blogga utan vinnunnar... eiginlega bara alveg glatað...

en já það er semsagt búið að vera nóg að gera hjá mér í nýja starfinu, ég átti ekkert frí um helgina vann alveg tæpa 12 tíma á föstudaginn en þá um kvöldið var forsýning á nýja bílnum .. síðan var opið báða dagana og alveg bilað að gera... eins í gær ég vissi eiginlega ekki hvað ég hét.. en seldi bíla :) minns er svo klár.. sat svo eftir til að verða sjö til að klára að ganga frá því sem ég átti eftir að gera.. svoldið annað en að geta bara labbað út á slaginu 5 eins og ég er vön..

En ég er samt bara ánægð með þetta dagurinn er mikið fljótari að líða og svona.. en ég er soldið þreyttari en það kemur.. verið soldið róleg í ræktinni undanfarið,, hef reyndar verið eitthvað slöpp finnst alltaf eins og ég sé alveg að verða veik...

svo eru bara að koma páskar og þá kemst maður heim..vei.. held að mamma sé alveg að deyja vantar svo mikið að fá litlu prinsessuna heim :):):):) svo ætlar María líka aðeins að fá að taka á því þegar ég kem heim ;)

en já nenni ekki að hafa þetta neitt lengra í bili..

læt heyra í mér síðar.. og já reyni fljótlega að klára að setja inn restina af myndunum...

en já afþví ég var svo léleg að blogga þá átti Þrúða afmæli 24 mars.. varð 25 eins og Aldís :) við eigum eftir að gera eitthvað skemmtilegt af því tilefni... svo var Emilía 1 árs 23 mars :) til hamingju með það mæðgur :)

kveðja   Steinunn


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.03.2007 16:51:25 / steindis

alltaf helgi...

hæ..

vildi bara setja hérna inn nokkrar línur.. en ég hef semsagt ekki allann  þennan tíma eins og áður til að blogga og svona... minns er semsagt byrjuð í sölunni, voða fín í dragtinni og svona... nýja starfið leggst bara vel í mig, held að það verði bara alveg fínt að selja bíla :)  Þannig næst þegar þú færð þér bíl þá veistu hvert á að fara ;)  Við erum að frumsýna nýjann Nissan QASHQAI borið fram kaskæ :)

ég er að vinna alla helgina þannig ég finn ekki mikið fyrir að það sé helgi.. ekki svona eins og síðustu helgi þá var enginn smá spenningur :)

en ég er ekki búin að gefa mér tíma til að henda inn restinni af myndunum en ég geri það fljótlega :)

En allavega eigið bara góða helgi :)

Steinunn


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.03.2007 18:58:33 / Aldís

allir að skoða

 

 

 

Hallóhalló bara segja öllum að skoða myndirnar frá helginni skemmtilegu :) bæði hjá mér og Steinu og svo líka hjá strákunum í IH :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.03.2007 10:13:34 / steindis

helgin liðin...

Laugardagurinn síðasti...

Aldísar Afmæli

Jæja þá er komin Þriðjudagur, ætlaði að blogga í gær en var svo busy að reyna setja inn myndir að það gafst ekki tími í það... En ég er semsagt búin að setja inn eitthvað af myndum inn en á samt slatta eftir.. skil ekki hvað maður er að taka svona mikið af myndum það tekur svo hrikalega mikinn tíma að setja þetta inn..

  

En sem sagt þá áttum við stelpurnar alveg hrikalega góðann dag saman.. og maður skilur ekkert í því hvers vegna maður gerir ekki svona oftar... en við hittumst upp í Kringlu um 3 á laugardaginn og ég og Sigrún fórum já og Gugga fórum að versla í Hagkaup fyrir kvöldið.. versluðum alveg helling, en borðuðum svo ekkert af því J síðan var farið í Ríkið já og keypt smá slatta... síðan brunað út í Hafnarfjörð að ná í föt og dót og svo í Mecca Spa sem var sko algjör draumur...vorum þar í tæpa tvö tíma.. umm vá hvað okkur leið vel eftir það....

 

 

síðan fórum við heim til Arnars og höfðum okkur til fyrir að fara út að borða... máluðum okkur pínu og svona... vorum mættar á Caruso kl átta þar vorum við færðar upp á þriðju hæð sem var svona líka nice...  geðveikt góður matur og svona,, Magga kom og borðaði með okkur.. J Fórum síðan heim alsælar og þá var enn aftur skipt um föt Hilmar kom og greiddi okkur...

 

 ég og Aldís máluðum stelpurnar samt aðallega Aldís....síðan vorum við bara í góðum gír hjá Arnari kíktum svo aðeins í bæinn, en það var svo kalt þannig það var stutt stopp þar.. en allavega var þetta alveg æðislegur dagur.. Takk stelpur fyrir frábæran dag JJ

 

En minns vaknaði í Bootcamp í morgun.. loksins fór líka í laugar í gær,, var búin að vera í viku frí frá ræktinni.. sem var reyndar alveg fínt var orðin pínu þreytt.. en er komin alveg á fullt aftur.. og verð nú dugleg fram að páskum þannig maður geti haft samvisku í að fá sér eitt lítið páskaegg J  

En já núna fer vonandi að fara verða meira að gera hjá mér, ég er semsagt að byrja sem sölumaður í nýjum bílum hjá okkur.. voða spennandi,, er að vinna alla næstu helgi þar sem við erum að frumsýna nýjan Nissan, magnaður bíll og vert að koma og kíkja J alveg eðal bíll fyrir vestfirskar aðstæður J   fjórhjóladrifin svona borgar jeppi J og mjög flottur...

En já þetta er orðin nóg í bili ætla að halda áfram að henda inn myndum í dag.. þannig þetta verður vonandi allt komið inn í kvöld.. en svo tók Aldís nú alveg fullt á sína.. þannig hún á nú eftir að setja þær inn líka J

 

 

             


» 7 hafa sagt sína skoðun

16.03.2007 13:36:38 / steindis

Helgi :)

Föstudagur...  

Þessi vika var ekki lengi að líða....sem er sko alls ekki verra... og hef á tilfinningunni að sú næsta verði alveg jafnfljót að líða, þótt ég þurfi þá að byrja vinna til sex...

 

Ég er alveg rosa spennt fyrir morgundeginum.. og langt síðan að ég hef verið í svona helgar gír... en Sigrún kemur með flugi seinnipartinn í dag og svo kemur Gugga líka í dag og ætlar að vera um helgina J bara gaman J hef ekki hitt Guggu mikið svona síðustu árið.. held meira segja bara 2... uss það er náttúrulega ekki í lagi...  

Já mamma er bara svaka lasin greyið.. bara með allann pakkann, Kári er með hita og Eva greyið er búin að vera ælandi seinasta sólarhringinn... þannig ætli að það sé ekki svona 99.9% líkur á að ég fái þessa pest líka L en núna er ég búin að vera hlaða í mig vitaminum og málið er bara að slaka á í dag held ég, svona þannig ég verði örugglega góð á morgun.. fann í morgun að ég var eitthvað slöpp... 

En vá hvað ég er alveg dottin út núna... ætli að ég bloggi nokkuð fyrr en eftir helgi.. þá get ég sagt ykkur frá einhverju og jafnvel sett inn nokkrar myndir J

Steinunn

 t

   

» 2 hafa sagt sína skoðun

15.03.2007 11:14:06 / steindis

15 mars 2007

15. Mars. 2007 

Jæja þá er afmælið hennar Dísu búið... það var nú kannski lítið gert hjá greyinu svona á sjálfan afmælisdaginn, en við fórum að borða á American Style... sátum þar svo heillengi að kjafta... voða nice bara .. en laugardagurinn er málið, þá verður alveg þétt dagskrá hjá okkur skvísunum.... planið er sko að fara í keilu eða eitthvað fyrst um daginn, síðan kl 4 förum við í mecca spa og ætlum að liggja þar í pottunum og gufu og verðum með veitingar og allann pakkan.. síðan upp úr og gerum okkur eitthvað “sætari” ...Hilmar ætlar að sjá um hárið á skvísunum, veit ekki alveg hvort það verði fyrir eða eftir mat.... ;) síðan eigum við pantað borð klukkan átta.. á caruso J síðan förum við heim til Arnars... held að við séum búin að fá leyfi fyrir því J  þar verðum við að dúllast eitthvað þar til við förum í bæinn J bara gaman...  Ég og mamma kíktum aðeins í Smáralindina í gærkveldi þar var konukvöld í gangi og alveg troðfull að kellingum... vá maður alveg ferlega mikill stemming yfir því samt J   ég var að versla mér vinnuföt, sem mér finnst nú ekki leiðinlegt.. verð samt eitthvað agalega gömul þegar ég er komin í svona dragt og allann pakkann JJ en ég semsagt er búin að finna mér eitthvað aðeins, en á nú eftir að kaupa einhverjar skyrtur og svona...  fékk reyndar líka smá af fötum hjá Aldísi J sem voru nú ekki fyrir vinnunna....

 

Vá maður ég gæti sjálfsagt bullað eitthvað hérna allann daginn... það er svo lítið að gera hjá mér núna... en já ég voða heppin líka allir að koma frá útlöndum og gefa mér allskyns JJJ fékk svona nike tösku frá kristjáni bró og Hönnu.. og svo komu Didda og Ívar líka með kanebo brúnkukrem og svona cool armband sem ég hef ekki tekið af mér og elska að fikta í  JJJ það er svona með seglum og svona.. mega cool.... 

 

allavega Takk æðislega fyrir mig J  

Steinunn


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.03.2007 09:48:36 / steindis

Aldís á afmæli í dag...

Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag..Hún á afmæli hún Aldís, hún á afmæli í dag..Hún er 25 ára í dag.. hún er 25 ára í dag

Hún er 25 ára hún Aldís.

 

  Hérna er Aldís með Ásu frænku fyrir einhverjum 23 árum..  Til hamingju með daginn Dísin mín J

Aldís er í fríi í dag þannig þær Anna gera eitthvað sniðugt.. en svo ætlum við að halda upp á það á laugardaginn, með því að vera saman og fara í Mecca spa og síðan förum við út að borða á caruso.. endum síðan á djamminu... það verður bara gaman.. hlakka geðveikt til JJ JJ 

Sigrún kemur með seinni vélinni á föstudaginn, þannig ég vona að veðurguðirnir verði okkur góðir...

En já ég var svo hrikalega syfjuð í morgun eftir helgina, þar sem ég hef ekkert sofið neina heila nótt að ég beilaði á bootcampinu í morgun.. já og mamma er orðin veik greyið.. veit ekki hvenær hún fer vestur...

 

En læt þetta duga í bili núna vil ég sjá fullt af kommentum svona til að stelpan sjái að það sé einhver að hugsa til hennar í dag :)


» 6 hafa sagt sína skoðun

12.03.2007 11:00:03 / steindis

mánudagur ;)

Jæja þá er helgin liðin og komin mánudagur... ég og mamma fórum nú létt með pössunina... ég er samt alveg ákveðin að vera ekkert að flýta mér í þessu.. ágætt að eiga bara smá í þessum tveim JJJ Hanna og Kristján koma svo heim seinnipartinn í dag J Ég og mamma erum alveg pínu þreyttar eftir helgina, Eva var eitthvað hálf slöpp þannig hún svaf ekki alla næturnar þannig við fengum að vaka aðeins með JJJ en held samt að hún sé orðin góð núna J

 

Annars gerðum við ekki mikið um helgina vorum mest bara heima.. ég reyndar fór á laugardagsmorguninn í bootcamp í tvö tíma í öskjuhlíðinni,,, vorum látin hlaupa fullt, labba dauðagöngu í kringum perluna og síðan bjarnargöngu kringum perluna.. lófarnir mínir voru ekki alveg góðir eftir það..

 

Talaði við pabba alveg óvenju mikið í gær... Kári var að spurja afa sinn hvort honum leiddist ekki svona einn heima?? Afinn sagðist nú alveg hafa nóg að gera og svona J En já Pabbi sagði mér að hann hefði verið að tala við Guðjón frænda og hann vissi bara allt... næstum meira en pabbi þar sem hann les alltaf bloggið ;) pabbi minn er nú ekki orðin svo tölvuvæddur að hann kunni það svona einn og sjálfur JJJ Guðjón tekur kannski bróðir sinn í kennslu J

 

En núna nenni ég eiginlega ekki að skrifa meira.. þetta er nú ekkert svakalega spennandi blogg hjá mér í dag,, er líka bara að láta tímann líða J AdiosSteinunn

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.03.2007 16:47:45 / steindis

föstudagur :)

Föstudagur og ekki nema 30 min eftir af vinnudeginum mínum.... er í kaffi núna sko ...hóst hóst....  búin að vera frekar rólegur dagur í dag... símkerfið er allavega komið í lag í dag..

 

En vá hvað ég er fegin að það sé bara komin helgi afur.. ég er alveg syfjuð í dag.. var vöknuð 6 í gær og var reyndar sofnuð snemma en svo vaknaði litla dísin aðeins milli 2 og 4 og vildi bara kúrast hjá frænku sinni... og vaknaði síðan rúmlega hálf sjö í morgun... þetta er alveg ágætis áminning á að það liggur ekkert á... múhaha.... en þau voru nú bara voða góð og stillt... Eva Sóley vildi reyndar bara vera hjá mér í morgun, amma mátti ekkert vera halda á henni JJJ   Svo á morgun er bootcamp æfing kl 9 í fyrramálið mæting hjá Perlunni, þar verðum við látin sprikla í tvö tíma... ég ætlaði reyndar að mæta á æfingu í kvöld en þar sem bakið á mér er í einhverju tjóni síðan í gær.. held ég bara að ég taki frí í dag.. þótt mig langi geggjað mikið út að hlaupa í góða veðrinu...

 

Didda frænka nýtur þess að kvelja mig þessa dagana er að senda mér myndir af þeim í hitanum og nú síðast af hitamælir þarna úti þar sem hitinn er 37 gráður.. umm.. væri ég til í að sóla mig aðeins í svona góðu veðri.. 

Jæja ætli ég láti þetta ekki bara duga í dag.. og læt meira frá mér heyra eftir helgina... 

 :)góða helgi :)

já og kommeta svona til tilbreytinga:)

Steinunn


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.03.2007 11:14:20 / steindis

8 mars...vá maður...

líður að helgi....

kominn fimmtudagur... þessi vika var ekki lengi að líða þrátt fyrir að dagarnir sjálfir hafi ekkert flogið áfram... En já mamma komst í bæinn og Kristján og Hanna ættu að vera lent núna úti í Frankfurt....

Þannig við mamma hugsum um krakkana á meðan :) og förum létt með það :) ég fór í bootcamp í morgun og svo að ná í Kára og fara með hann á leikskólann.. fannst ég búin að vera vakandi alveg heillengi þegar ég var að mæta í vinnunna...

Ég og Margrétin fórum út að hlaupa í góða veðrinu í gær eftir vinnu.. hlupum bara nokkuð langt held ég.. á þess að vita hvað það var nákvæmlega langt.. er ekki alveg að átta mig á þessu göngustíga vegalengdum... er víst ekki hægt að fara á bílnum að mæla þær eins og ég er vön heima á stöndinni...

Svo er bara eitthvað chill um helgina, verður svo svaka fjör á laugardaginn næsta þá ætlum við að halda upp á afmælið hennar Aldísar með því að fara í dekur og út að borða og enda síðan að kíkja út á djammið :):):) það verður rosalega gaman :) og erum að plana þetta á fullu ég og Sigrún en hún kemur líka í bæinn til að taka þátt í fjörinu ;)

en anyway... læt þetta duga í bili.. vona að allir hafi það gott í útlöndum þessa dagana.. hugsa mikið til ykkar :) Endilega kommentið ef þið hafið komist í tölvu.. segja mér frá góða veðrinu og svona :)

bæjó  Steinunn


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.03.2007 15:03:47 / steindis

Þriðjudagur til Þrautar...

 

best að henda inn nokkrum línum hérna.... svona um síðustu daga eitthvað.. en já helgin er liðin og næsta á leiðinni.. ekkert smá fljótt að líða að venju.. ég kíkti á árshátíð IH á laugardaginn, það var alveg svaka stemming og kom mér bara óvart hvað það var gaman :) enda skemmtilegt lið sem maður er að vinna með ;););)

minns er alveg búin að vera þokkalega dugleg í ræktinni.. en mætti samt alveg vera duglegri... fór samt út að hlaupa í gær.. það var svo gott veður sól og 5 stiga hiti ;) og alveg fullt að fólki að sprikla svoldið annað en ég er vön heima :)

fór í bootcamp í morgun.. sem er alltaf jafn mikil snilld og elska að fara í sund svo á eftir...  hrikalega góð byrjun á degi :) en er reyndar alveg syfjuð núna, þar sem það er ekkert að gera og alveg heitt hérna inni...

Þrúða er núna í þessum skrifuðu orðum að innrita sig á Keflavíkur flugvelli í flug til Florida, get nú ekki annað sagt  að ég öfundi hana :) já líka Krístínu og Ívar sem eru núna í hitanum á Kanarí..umm... en vonandi hafa allir það bara gott í útlöndum :)  Kristján og Hanna eru að fara á fimmtudaginn í helgarferð, þótt fyrr hefði verið haha :):):) Mamma á bókað flug á morgun já svo er bara spurning hvort það verði flogið :) annars redda ég þessu bara þar til að hún kemur :) fer nú létt með að vera með litlu krúttin mín.., hlakka mikið til :)

En núna ætla ég að hætta þessu bulli í bili...

þetta voðalega langur þriðjudagur eitthvað...

Steinunn 


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.03.2007 21:42:41 / Aldís

frí loksins :)

vá hvað ég er klikkað þreytt eftir vikuna búin að vinna eins og brjálaðingur alla daga en á loksins frí á morgun en bara í 1 dag sem er alveg nóg fyrir mig :) elska vinnuna mína ;) en hún væri nú ekki svona skemmtileg ef ég væri ekki að vinna með svona skemmtilegu fólki alveg dýrka þau öll :)

en það fer að stittast í afmælið mitt sem er 13 mars þá verð ég 25 (hálf fimmtug) sem á eftir að vera sorgardagur í lífinu mínu :( sem betur fer er ég í fríi þá get ég lokað mig inn í herbergi og grátið :( eins og Rachel í friends þegar hún varð 30 :) en spáið í því ég er að verða fokking 25 ára shit sko það er gamalt aaarrrgggg :(en ég nenni ekki að tala um það lengur á bara eftir að detta í eikkað þunglyndi :)

skvísurnar mínar Steinunn og Sigrún ætla að bjóða mér í eikkað dekur í Laugum 17 mars og ætlum svo allar út að borða og svo á djammið vona bara að Anna mín og Gugga koma líka með og svo nátturulega meiga allir koma með á djammið :)þarf samt að mæta hress og kát í vinnuna daginn eftir sem verður ekker mál :)

svo er ég og Anna að spá í að koma vestur um páskana á bretti (ef það verður snjór) og djamma gera allt vitlaust fyrir vestan hehe neinei við erum alltaf svo góðar stelpur :) fáum að vera hjá henni Söndru frænku Sigga er að fara eikkað út,,, þá verður sko partý :)

 jæja ég er að spá í að fara að sofa,,,, er búin að vera ein heima í allt kvöld :( er alveg ónýt án Önnu minnar :(

bæjó í bili Aldís  


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.03.2007 13:51:19 / steindis

Hún á afmæli í dag :)

1.MARS.2007.

Hún Margrét mín á afmæli í dag J

Til hamingju með það sæta J

Stelpan orðin 23 ára J  

Nú er skvísan útí Brussel í einhverju lögfræðistússi, vona bara hún hafi það rosa gott J við gerum svo eitthvað skemmtilegt þegar hún kemur heim ;)

Já ég var nú varla að þora að blogga í dag þar sem myndaserían hennar Aldísar getur næstum dottið út því hún er svo löng...  ég vona ekki að mörgum af eldri kynslóðinni hafi misboðið mikið JJJ múhahaha....       

En já minns er bara í vinnunni og alveg crazy að gera eins og alltaf eða hitt þó... en það fer nú vonandi að breytast bráðum JJ J      

Minns beilaði á ræktinni í morgun, fór of seint að sofa, og litla stelpan þarf alveg átta tíma svefn .. þannig að það verður bara rækt stax eftir vinnu ;)María svo næst þegar þú kemur í bæinn, skal ég leyfa þér að koma með mér í ræktina og prófa bootcamp líka JJ múhaha væri gaman að fá að pína þig aðeins JJ J

En já svo á næstu helgi er Kristján bróðir og Hanna að fara til Frankfurt og mamma kemur í bæinn og við ætlum að passa litlu dýrin mín á meðan J er farin að hlakka til að fá að vera aðeins með þeim báðum.. þá verður farið í sund og svona J voða gaman..

svo á Aldís min afmæli á þriðjudaginn og á laugardaginn verður eitthvað sprellað að tilefni dagsins J og Sigrún Harpa kemur í bæinn og svona vívíví gaman JJ

En já þetta er orðin alltof löng færsla

Ætla reyna fara finna mér eitthvað að gera til 3.. Þá er tíminn nebbla alltaf svo lengi að líða ..

Eigið bara góða byrjun á helgi J

Steinunn


» 7 hafa sagt sína skoðun


Dagsetning
20. mars 2010
Heimsóknir
Í dag:  30  Alls: 121922
Klukkan
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 18 apríl